Í sól og sumaryl
þegar Sigrún var að fara af stað til Kefl um 4 leitið nóttina 13. ágúst kom í ljós að hleðslutækið fyrir myndavélina hennar var týnt...dudduddu (drungaleg tónlist). Eins og sumir vita kannski þá hefur stúlkan sú dálítið gaman að ljósmyndatökum svo henni leist ekki á blikuna. Sem betur fer hélt hún í bjartsýnina og tók batteríislitla vélina með sér. En til allrar hamingju, þegar daman var komin í röðina á vellinum kom græjan í leitirnar. fjúff. Hún var bara allan tímann í litlu hólfi í tösku (sennilega búin að vera þar frá því i Frankfurt). Allavega, þessi fundur gerði henni kleift að festa í minni enn eina yndislega ferð til útlanda.Flugið einkenndist af svefni:D nokkuð gott að hafa þann eiginleika þegar kemur að nokkurra klukkutíma ferðalögum. Hótelið var lítið og notalegt, bara fyrir íslendinga. Fyrri vikuna var lítið um hressileika nágranna okkar. Allir farnir að sofa hvert einasta kvöld þegar við komum heim úr kvöldmat. Annað eða þriðja kvöldið okkar var ungur drengur sem beið eftir okkur inni í herbergi. Það var lítil eðla. Eftir þar fékk hann að vera gæludýrið okkar. Golíat litli varð held ég bara nokkuð hændur að okkur:) Sjá Myndir! Kisi litli var líka dálítið iðinn við að kíkka í heimsókn....maúr var sko ekki einmana:)
Við leigðum okkur svo vespu og keyrðum ansi mikið um eyjuna. Það var mjög gaman og við sáum ýmislegt. Þetta var allt frekar svipað Rhodos fyrir utan að á Krít er allt dálítið eldra og druslulegra. En samt sem áður mjög notalegur staður til að vera á.Skal alveg skella mér aftur við tækifæri.
Ég sé það núna að ég nenni ekki að skrifa meira um ferðina... allavega í bili. Kannski seinna þegar ég nenni að setja inn fleiri myndir.
Ég skal samt mála litla mynd af þessu: sól, strönd og MYTHOS=hamingja!
Annars er það barað frétta að það er rosalega gaman í skólanum. Ég lísi hér með eftir módelum. Einnig óska ég eftir ungum dömum sem eru tilbúnar í að koma í heimsókn annaðslagið á kvöldim og leifa mér að æfa mig á andlitii sínu. Skráning er hafin hér með:)
Bæ í bili
15. september 2008 klukkan 20:15
Sigrún
Sigrún

