September
Það er að koma vetur, eða allavega haust. Þegar tilfinning sem einkennist af söknuði og tilhlökkun heltekur mann. Þegar maður er farin að sakna allra vina sinna svo mikið að tilhlökkun að byrja aftur í skólanum yfirtekur allt. En nei í þetta skiptið er enginn Menntaskóli. Allir farnir í sitthvora áttina og allir að gera nýja og spennandi hluti.Ég er samt komin með spenning í magann að byrja í nýja skólanum mínum. Í næstu viku byrja ég í förðunarskóla sem ég verð í þessa önn. Hlakka rosa til:) Svo er ég komin með áframhaldandi vinnu með skólanum og allt að gerast. Það er alltaf svo gott þegar planið gengur upp og maður veit hvað er framundan:) mér finnst það allavega.
Skólinn er alveg hannaður fyrir fólk eins og mig. Nú er allavega langþráður draumur minn að rætast; að þurfa ekki að mæta í skólann fyrr en klukkan 9. ahh hvað það verður ljúft að geta sofið til klukkan 8 og vera svo í göngufæri við skólann. Ó já, hann er bara hinum megin við götuna:)
Svo er nú alveg yndislegt hvað það eru margir að farað vera í borg óttans með mér:) Erna er nátla komin og Júlía. Svo Vésa mín að farað koma.
Það verður mikið fjör og mikið djamm í vetur:) okey? hver er geim?
svo lofa ég að farað koma með ferðablogg um leið og ég afreka að koma myndunum inn í tölvuna;) ha Lára, ég lofa:)
03. september 2008 klukkan 21:56
Sigrún
Sigrún

