29júní
Það er komin einhver blogglöngun í mig. Facebook er kannski ekki að færa mér þá gleði sem bloggið gerir.
það er orðið svo langt síðan ég kom hingað inn að ég var næstum búin að gleyma passwordinu. En það er allavega spurning um að reyna að endurvekja bloggfílinginn. Held það sé nauðslynlegt svona í vetur þegar skólinn byrjar og nennir ekki að læra, þá er bloggið alltaf klassísk afsökun:)
Ég er reyndar farin að hlakka mikið til að byrja í skólanum, bara komin spenna í mann. Gaman líka hvað það eru margir í kringum mann að byrja í haust, það verður hálfur gamli MA-bekkurinn saman í þessu í haust;)
Jæja, mér liggur ekkertá hjarta...best að kíkja á facebook.
31október
Ég er hér með hætt að hlusta á fréttir. Þunglyndið nær tökum á manni ef maður hlustar á fréttirnar á hverjum degi. Ég er oftast með kveikt á Bylgjunni í vinnunni á kvöldin og mikið er það orðið leiðinlegt að hlusta á þessi efnahagsmál þjóðarinnar dag eftir dag. Ég hef svosem ýmislegt um þau mál að segja en nenni því ekki, er búin að fá nóg af svoleiðis.
Þess vegna kýs ég að hugsa frekar um það hvað mér leiðist mikið á kvöldin. Vinnuhelgar eru ekki í uppáhaldi. Það er mjög gaman í vinnunni samt. en mikið er leiðinlegt að vakna svona snemma þegar Reynir má sofa lengur og þurfa að farað sofa þegar hann kemur heim úr vinnunni. Bömmer. Ég hlakka til þegar ég verð rík:) Þá verður sko ekki unnið um helgar nema svona bara sér til yndisauka:)
Ég hugsa mikið um jólin þessa dagana. Hlakka til að komast í frí, vera búin með skólann og bara hafa jól. Það er rosalega snemmt að hugsa um jólin, ég veit. en hvernig er annað hægt. Það hrinja hér inn hjá mér bæklingar úr búðum sem eru að auglýsa jólin. Jólavörur, jólahlaðborðin eru að verða upppöntuð og svo sé ég jólatré fyrir utan húsasmiðjuna á hverju kvöldi á leiðinni heim. Það er nú bara notalegt svona í myrkrinu. Held ég fari samt ekki í skreytingar alveg strax. Bíða allavega þangað til Raggi vinur minn í Áshlíðinni á Akureyri byrjar. Hann var held ég komin með allt upp 7. nóvember í fyrra.
Nú rétt í þessum töluðu orðum eru undur og stórmerki að gerast. Sigrún er að skrá sig inn á facebook....
Daddara, ætlað skoða þetta. bæ
03október
Enn eitt föstudagskvöldið er að líða og ég er ekki að gera neitt. Er að horfa á einhverja steikta mynd. Nenni ekki að hætta að horfa á hana, það er svo leiðinlegt að klára ekki mynd og vita ekki hvernig hún endar. Gallinn er samt líka að ég hef bara ekkert annað að gera. Það fylgir því að vinna um helgar. Allavega þegar maður fer að vinna klukkan 7. Mig dreymir alltaf meira og meira um þann dag þagar að því kemur að ég þarf ekki að vinna um helgar. Þegar allar helgar eru fríhelgar. þá held ég að lífið verði gott. Ég ætla svosem ekki að kvarta yfir vinnunni minni. Hún er æðisleg. Það er bara letin sem mér leiðist. Það er bara svo gott að sofa á monnana. Það er líka yndislegt að þurfa aldrei að mæta skólann fyrr en klukkan 9. Það er voða ljúft. og að vera svo í fríi á föstudögum.
Planið er einmitt að nota mér það og fara norður bræaðum og taka langa helgi.
Reykjavíkin er svo bara full af snjó. Það bætti nú bara á tilhlökkun mína til jólanna. Er búin að hugsa mikið um það síðustu daga hvað ég hlakka til jólanna, er farin að telja niður..eða næstum.
Mér leiðist frekar mikið, enda er þetta mjög leiðinlegt blogg þið fyrirgefið sem slysuðust í gegnum það. reyni betur næst. er farin að láta mig dreyma um jólin meðan ég klára að horfa á myndina;) ble
15september
þegar Sigrún var að fara af stað til Kefl um 4 leitið nóttina 13. ágúst kom í ljós að hleðslutækið fyrir myndavélina hennar var týnt...dudduddu (drungaleg tónlist). Eins og sumir vita kannski þá hefur stúlkan sú dálítið gaman að ljósmyndatökum svo henni leist ekki á blikuna. Sem betur fer hélt hún í bjartsýnina og tók batteríislitla vélina með sér. En til allrar hamingju, þegar daman var komin í röðina á vellinum kom græjan í leitirnar. fjúff. Hún var bara allan tímann í litlu hólfi í tösku (sennilega búin að vera þar frá því i Frankfurt). Allavega, þessi fundur gerði henni kleift að festa í minni enn eina yndislega ferð til útlanda.
Flugið einkenndist af svefni:D nokkuð gott að hafa þann eiginleika þegar kemur að nokkurra klukkutíma ferðalögum. Hótelið var lítið og notalegt, bara fyrir íslendinga. Fyrri vikuna var lítið um hressileika nágranna okkar. Allir farnir að sofa hvert einasta kvöld þegar við komum heim úr kvöldmat. Annað eða þriðja kvöldið okkar var ungur drengur sem beið eftir okkur inni í herbergi. Það var lítil eðla. Eftir þar fékk hann að vera gæludýrið okkar. Golíat litli varð held ég bara nokkuð hændur að okkur:) Sjá Myndir! Kisi litli var líka dálítið iðinn við að kíkka í heimsókn....maúr var sko ekki einmana:)
Við leigðum okkur svo vespu og keyrðum ansi mikið um eyjuna. Það var mjög gaman og við sáum ýmislegt. Þetta var allt frekar svipað Rhodos fyrir utan að á Krít er allt dálítið eldra og druslulegra. En samt sem áður mjög notalegur staður til að vera á.Skal alveg skella mér aftur við tækifæri.
Ég sé það núna að ég nenni ekki að skrifa meira um ferðina... allavega í bili. Kannski seinna þegar ég nenni að setja inn fleiri myndir.
Ég skal samt mála litla mynd af þessu: sól, strönd og MYTHOS=hamingja!
Annars er það barað frétta að það er rosalega gaman í skólanum. Ég lísi hér með eftir módelum. Einnig óska ég eftir ungum dömum sem eru tilbúnar í að koma í heimsókn annaðslagið á kvöldim og leifa mér að æfa mig á andlitii sínu. Skráning er hafin hér með:)
Bæ í bili
03september
Það er að koma vetur, eða allavega haust. Þegar tilfinning sem einkennist af söknuði og tilhlökkun heltekur mann. Þegar maður er farin að sakna allra vina sinna svo mikið að tilhlökkun að byrja aftur í skólanum yfirtekur allt. En nei í þetta skiptið er enginn Menntaskóli. Allir farnir í sitthvora áttina og allir að gera nýja og spennandi hluti.
Ég er samt komin með spenning í magann að byrja í nýja skólanum mínum. Í næstu viku byrja ég í förðunarskóla sem ég verð í þessa önn. Hlakka rosa til:) Svo er ég komin með áframhaldandi vinnu með skólanum og allt að gerast. Það er alltaf svo gott þegar planið gengur upp og maður veit hvað er framundan:) mér finnst það allavega.
Skólinn er alveg hannaður fyrir fólk eins og mig. Nú er allavega langþráður draumur minn að rætast; að þurfa ekki að mæta í skólann fyrr en klukkan 9. ahh hvað það verður ljúft að geta sofið til klukkan 8 og vera svo í göngufæri við skólann. Ó já, hann er bara hinum megin við götuna:)
Svo er nú alveg yndislegt hvað það eru margir að farað vera í borg óttans með mér:) Erna er nátla komin og Júlía. Svo Vésa mín að farað koma.
Það verður mikið fjör og mikið djamm í vetur:) okey? hver er geim?
svo lofa ég að farað koma með ferðablogg um leið og ég afreka að koma myndunum inn í tölvuna;) ha Lára, ég lofa:)
31júlí
Nú eru bara tæpar 2 vikur í að ég fari til útlanda. Mikið hlakka ég til að komast í frí og hafa það notalegt í sólinni. Í gær hélt ég reyndar að ég væri í útlöndum. Það var 28 stiga hiti í borginni og til allrar hamingju var ég í fríi svo ég gat notið þess í botn. Það var snilld að fara í gönguferð um laugardalinn og sjá allt fólkið sem var á ferli. Aldrei hef ég áður séð svona mikið af fólki úti að rölta og spóka sig á venjulegum miðvikudegi á íslandi. Snilld!!! Þetta var reyndar bara til þess að æsa upp í mér tilhlökkunina í sólarströnd og mythos. 13 dagar, 13 dagar. Sumarið hefur farið að mestu leiti í vinnu og þess á milli örlitla leti. Er ekki alveg nógu ánægð með að vera búin að fara í einu útilegu sumarsins, hún var í roki og rigningu. Dauðlangar í útilegu og djamm um helgina! hvenær ætli það komi að því að ég verði í fríi um versló? Það hefur nefninlega aldrei gerst. Spurning um að fara bara að tjalda úti í garði:)
21júlí
Ég er orðin rodalega rugluð í dögunum. Þetta vill gerast á sumrin, sérstaklega þegar maður er í vaktavinnu. Ég veit orðið aldrei hvaða dagur er. Held það sér sunnudagur í dag. Það er líka svona sunnudagsveður, rigning. Svoleiðis verður vikan samt sennilega í heild sinni svo það eru margir sunnudagar framundan.
Mér finnst rigningin góð:)
09júlí
Jæja. ég ætlað gera heiðarlega tilraun til að endurvekja bloggið mitt. það virðist vera eina samskipta og tjáningarformið í heiminum eins og er. Allavega er annars ansi erfitt að halda sambandi við fólk. Það eru allir uppteknir og nóg að gera hjá okkur öllum, allir á sitthvorum staðnum og að gera misjafna hluti.
Ég er allavega búin að vera á fullu síðan ég flutti suður. Vinna nánast upp á hvern dag og það er alveg yfirdrifið nóg. Vinnavinnavinna, svo innihaldslaust líf að vera bara að eltast við peninga. Mig langar út í heim. Upplifa e-ð nýtt og gera stóra hluti. Mér leiðist, ég er ein heima og hef ekkert að gera. Ég ætti að fara að sofa, þarf að vakna í vinnuna fyrir kl 7 í fyrramálið. Ég bara nenni því ekki. Mig langar að gera e-ð!
Það er kveikt á Dynasty hérna fyrir framan mig...eðal þáttur sýnist mér hehe. spurning um að sætta sig við það sem skemmtun kvöldsins. Fara svo í gönguferð fyrir háttinn.
peace out:)
22mars
Fólk eru merkelg fyrirbæri! Ég er í vinnunni núna. Búið að vera frekar rólegt í dag en þær hringar sem koma inn eru langflestar tengdar fyritækjum. Þ.e.a.s opnunartíma verslana og þess háttar. Inn á milli koma svona þessar tíbísku hringingar sem hægt er að skemmta sér yfir. t. d þegar fólk hringir og biður um nafn, Segjum bara Hafdís. Svo veit viðkomandi ekkert meira. Hann leitar að hafdísi sem átti einu sinni heima í vogunum og flutti fyrir hálfu ári. Ekkert eftirnafn og engar upplýsingar. Sumir halda að við sem vinnum hér höfum þann eistaka hæfileika að þekkja alla!! Stundum er maður meistari og finnur þessa hafdísi. en ef ekki þá er fólk alveg hneikslað að við skulum ekki vita hver hafdís er og í hvernig fötum. Áðan hringdi kona, samtalið var sirka svona:
ég: 118 góðan dag.
Kona: já ertu með númerið ....e-ð blablabla.
svo var hún búin að fá númerið og ég sagði gjörðu svo vel, bless bless.
þá heyrist í konunni: halló, hver er þetta?? hahaha. fólk er fyndið!
Einn sagði: mig vantar símanúmer, ég man ekki hjá hverjum!! hjá hverjum andskotanum er það símanúmer? hvers andskotans símanúmer var það? Ég ætlaði bara að kasta á þau kveðju.
Ég er búin að sjá að fólk er alveg kaupasjúkt. Það er opið í bónus til kl. 8 í dag. eins og fólk hafi ekki verslað nóg fyrir helgi. Ég get ekki ímyndað mér að það sé mikið frí hjá starfsfólkinu á þessum stöðum.
Mig dreymdi í nótt að ég hefði faríð í risastóra bónusverslun og keypt alveg helling. Planið var svo að fara líka í nettó eða hagkaup. Svo alltí einu áttaði ég mig á að það var ekkert sem ég ætlaði að kaupa sem ég fengi frekar í nettó heldur en bónus. Svo ég ákvað að fara aðra ferð inní bónus first ég var þar hvort sem er. Ég fór inn og fillti körfuna af öllu sem ég sá og mig gæti mögulega langað í um helgina. Ég kaypti serios og kókópuffs, þrátt fyrir að vita að það væri alveg nóg til heima. Ég keypti hárvörur sem ég vissi ekki til hvers voru, bara vegna þess að . Þegar ég kom að kassanum skammaðist ég mín svo mikið að ég skildi helling eftir í körfunni.
04mars
Hæ ég heiti Sigrún og ég er bubblesisti.
Ég kinntist bubbles eitt rólegt vetrarkvöld í febrúar 2008 og síðan hefur bubbles staðið þétt við bakið á mér. Ég hef oft heyrt talað um bubbles em aldrei skilið alveg afhverju hann væri svo vinsæll. En þegar ég hóf samband mitt við bubbles var ekki aftur snúið. Nú gerum við bubbles allt saman, við lærum saman, við tölum í síman saman, við erum saman í vinnunni. Stundum borðum við meira að segja saman. Þetta er farið að jaðra við sjúkleika...en hvað á svosem stelpa annað að gera seint á kvöldin.
p.s til hamingju með daginn júlía:*